L
N
G
H
F
Grísahelmingur sagaður
Áður en skrokkurinn er tekinn í parta eru lundir fjarlægðar úr læri. Ósnyrtur afturhluti grísahelmings aðskilinn frá miðhluta skrokksins með beinum skurði í gegnum hrygg og síðu á milli 6. og 7. spjaldhryggjarliðar þannig að allur mjaðmaspaði fylgir læri.
Fremsti hluti grísahelmings er aðskilinn frá miðhluta með beinum skurði þvert á hrygg og síðu á milli 5. og 6. brjósthryggjarliðar þannig að allt herðablaðið fylgir með.
Grísamiðju er skipt að neðan af skurði samsíða hrygg þvert á rifin 3 – 6 cm frá enda hryggvöðva.