Kjötmat

  • Um kjötmat
  • Aldursflokkar og þyngdarmörk
  • Flokkunarkerfi fyrirtækjanna

Um kjötmat

Ekkert opinbert kjötmat, þ.e. gæðamat með tilliti til holdfyllingar, sláturgalla og snyrtingar, er á alifuglakjöti.

Í gildi er reglugerð nr. 260/1980 um útbúnað alifuglasláturhúsa, slátrun alifugla, verkun þeirra og heilbrigðisskoðun (með áorðnum breytingum).

Afurðum sem við heilbrigðisskoðun eru dæmdar hæfar til manneldis og dreifingar er þannig lýst í reglugerðinni að þær séu af vel útlítandi, heilbrigðum fuglum, sem fengið hafa hreinlega meðferð við slátrun og sem eru án verulegra galla.

Eftirfarandi ákvæði um aldursflokkun afurða og þyngdarflokun eru í reglugerðinni.

Matsreglur

Kjúklingar

  • Alifuglar sem eru 14 vikna eða yngri þegar þeim er slátrað, lágmarksþyngd 500 g eftir sláturverkun.

Ungfuglar

  • Alifuglar sem eru á aldrinum 15-30 vikna, þegar þeim er slátrað, lágmarksþyngd 1000 g eftir sláturverkun.

Unghænsni

  • Fuglar sem eru á aldrinum 8-20 mánaða, þegar þeim er slátrað. Lágmarksþyngd 1000 g eftir sláturverkun.

Hænsni

  • Fuglar sem eru eldri en 20 mánaða, þegar þeim er slátrað.

Framleiðendum er heimilt að flokka sláturfugla nánar innan aldursflokkanna, t. d. eftir þyngd, kyni, holdafari o. s. frv.

Framleiðendum er heimilt að flokka sláturfugla nánar innan aldursflokkanna, t. d. eftir þyngd, kyni, holdafari o. s. frv.

Sláturleyfishafar

Starfandi eru þrjú alifuglasláturhús á Íslandi, Ísfugl, Matfugl og Reykjagarður. Fyrirtækin nota öll nánari þyngdarflokkun á kjúklingum og hafa skilgreint 1. flokk kjúklinga (gallalaus) og 2. flokk (minniháttar gallar).

Ísfugl Matfugl Holta
nr. Afurðir Þyngdir gr. nr. Þyngdir gr. nr. Þyngdir gr.
1 Frosti 700 – 850 1 0-1050 1 0 – 900
2 Glóðarkjúklingur 850 – 1000 3 1050-1200 2 900 – 1200
3 Holdakjúklingur 1000 – 1100 4 1200 – 1300 3 1200 – 1350
5 Holdakjúklingur 1280 – 1550 5 1300 – 1450 4 1350 – 1500
6 Holda Regin 1550 – 1800 6 1450 – 1650 5 1500 – 1600
10 Boltakjúklingur 1800 + 7 1650 – 1800 6 1600 – 2500
8 1800 + Hátíðarkjúklingur um 3000
Kalkúnn Kg
< 3
3 – 4
4 – 5
5 – 6
6+
8+
Loka glugga