L N G H F

Nautahakk

Stækka

Nautahakk er búið til úr hvaða hluta skrokksins sem gefur fullnægjandi vöru. Hvorki má nota hausakjöt né innmat í hakk. Við vinnslu í hakk ber að fjarlægja bein, brjósk, stórar æðar, þykkar himnur, kirtla og dökkt mislitað kjöt. Í hreinu nautahakki er hakkað kjöt og ekkert annað. Hakk af ungum gripum, innan 30 mánaða, er kallað ungnautahakk en hakk af eldri gripum nautgripahakk. Nautahakk er hægt að fá í mismunandi gæðaflokkum eftir magni fitu og bandvefs. Í nautahakki með viðbættu vatni og trefjum skal koma fram í undirheiti hvert sé viðbætta efnið, soyja, trefjar eða annað.

Uppskriftir

Tell a friend about this page